Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 271. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 314  —  271. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um eftirlit með loftgæðum.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.



    Hvernig er háttað eftirliti með loftgæðum á helsta áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli? Eru einhverjar breytingar fyrirhugaðar á eftirliti með loftgæðum í kjölfar reynslunnar af eldgosum í jöklinum?