Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 330. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 397  —  330. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun byggðakvóta til Reykjanesbæjar.

Frá Róberti Marshall.



    Hefur ráðherra kannað möguleika þess að úthluta sérstökum byggðakvóta til Reykjanesbæjar í ljósi sérlega bágs atvinnuástands í bænum?


Skriflegt svar óskast.