Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 355. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 445  —  355. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um póstsamgöngur við afskekktar byggðir.

Frá Guðmundi Steingrímssyni.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að áfram verði haldið að keyra póst til afskekktra byggða á Íslandi? Ef svo er, til hvaða ráðstafana hyggst ráðherra grípa til að tryggja póstsamgöngur, í ljósi tíðinda undanfarið um misbrest á póstdreifingu til afskekktra staða?


Skriflegt svar óskast.