Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 392. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 575  —  392. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um kræklingarækt og krabbaveiðar.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Hver er stefna ráðherra varðandi skipulag, uppbyggingu, nýtingu og stjórnsýslu í kræklingarækt? Óskað er eftir sundurliðun eftir landsvæðum.
     2.      Hver er stefna ráðherra varðandi skipulag, stjórnsýslu, nýtingu og veiðar á krabbategundum? Óskað er eftir sundurliðun eftir tegundum og landsvæðum.


Skriflegt svar óskast.