Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 421. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 693  —  421. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um réttindi sjávarjarða.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Verður útræðisréttur sjávarjarða virtur og staðfestur við þá endurskoðun laga um stjórn fiskveiða sem núverandi ríkisstjórn hyggst ráðast í?
     2.      Verða eignarréttindi sjávarjarða innan netlaga tryggð við endurskoðunina?


Skriflegt svar óskast.