Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 473. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 766  —  473. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um nefskatt og RÚV.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hversu mikið hafa einstaklingar og fyrirtæki greitt árlega í nefskatt vegna RÚV, frá því að gjaldið var tekið upp?
     2.      Hversu há hafa framlög úr ríkissjóði til RÚV verið á sama tíma?
     3.      Hvað er gert við mismuninn af nefskattinum og beinum framlögum úr ríkissjóði til RÚV, ef einhver er?
     4.      Hve margir hafa starfað hjá RÚV árin 2000–2011?


Skriflegt svar óskast.