Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 501. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 823  —  501. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um aðgengi almennings að Vatnajökulsþjóðgarði.

Frá Jónínu Rós Guðmundsdóttur.



     1.      Er unnið eftir markvissri áætlun að bættu aðgengi almennings að Vatnajökulsþjóðgarði?
     2.      Hver er staðan í gerð stíga og merkinga innan þjóðgarðsins og gerð korta af svæðum innan hans?