Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 600. máls.
til velferðarráðherra um framkvæmd heilsustefnu, hvatningu til frístundaheimila o.fl.
Hvernig hefur gengið að ná fram eftirtöldum markmiðum sem eru sett fram í heilsustefnu ráðuneytisins frá 2008:
a. að öll frístundaheimili hafi fengið hvatningu til að bjóða upp á næringu í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar í lok árs 2009,
b. að allir grunnskólar og foreldrar hafi verið hvattir til að auka hreyfingu barna í lok árs 2009,
c. að grunnskólar séu án tóbaks og vímuefna í lok árs 2010,
d. að allir framhaldsskólar hafi fengið hvatningu og/eða aðstoð við að útfæra heilsustefnu í skólanámskrá sinni þar sem hugað sé að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan nemenda og starfsmanna með áherslu á heilsueflingu og forvarnir þar sem komið verði á samstarfi við foreldra- og nemendafélög,
e. að í lok 2009 verði búið að hvetja alla framhaldsskólar til aukins aðgengis að hollum mat í skólunum og veita starfsmönnum mötuneyta ráðleggingar um hollt mataræði,
f. að 30% framhaldsskóla hafi sótt um viðurkenningu í lok árs um að þeir fari eftir ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni sem útfærðar eru í handbók fyrir skólamötuneyti?
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.
Þskj. 1019 — 600. mál.
Breyttur texti.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um framkvæmd heilsustefnu, hvatningu til frístundaheimila o.fl.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.