Framkvæmd þingsályktunarinnar
Þskj. 1269 — 739. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar
innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011.
(Lögð fyrir Alþingi á 139. löggjafarþingi 2010–2011.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 18. og 22. febrúar 2011.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 18. og 22. febrúar 2011. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með tillögu þessari.
Samningur þessi kveður á um allar heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2011 og er óbreyttur frá fyrra ári. Færeysk skip fá heimild til að veiða 30 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu á loðnuvertíðinni 2011/2012 svo fremi að leyfilegur heildarafli verði a.m.k. 500 þús. lestir. Verði leyfilegur heildarafli minni nemur hlutdeild færeyskra skipa 5% af honum. Þá fá Færeyingar heimild til að vinna loðnu um borð og landa henni til manneldis erlendis. Mega þeir þannig vinna 3/ 4 hluta kvótans ef leyfilegur heildarafli er minni en 500 þús. lestir. Ef leyfilegur heildarafli er aftur á móti meiri en 500 þús. lestir mega Færeyingar vinna 2/ 3 hluta kvóta síns. Eftir 15. febrúar skal þó eigi meira en 1/ 3 hluti kvóta færeyskra skipa fara til manneldisvinnslu utan Íslands. Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2011/2012 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
Samningurinn gerir einnig ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2011.
Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2011.
Loks er í samningnum kveðið á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum, sem skráð eru í landi hins aðilans, leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2011.
Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 22. febrúar 2011 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.
Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2011. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 40 lestir. Er þetta óbreytt frá fyrra ári.
Fylgiskjal.
SAMNINGUR
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011.
a. Bréf utanríkisráðherra Íslands til utanríkisráðherra Færeyja.
Hr. utanríkisráðherra
Jacob Vestergaard
Føroya Landsstýri
Torshavn
Hr. utanríkisráðherra.
Ég leyfi mér að vísa til samtala milli sjávarútvegsráðherra Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011.
Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:
„Samningur
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011.
1. gr.
Heimilt er færeyskum skipum að landa afla sínum til vinnslu á Íslandi. Verði leyfilegur heildarafli minni en 500 þús. lestir er heimilt að landa til manneldisvinnslu utan Íslands eða taka til manneldisvinnslu um borð í færeyskum vinnsluskipum magn sem nemur allt að 3/ 4 hlutum af kvóta færeyskra skipa, sbr. 1. mgr. Verði leyfilegur heildarafli aftur á móti meiri en 500 þús. lestir er eigi heimilt að landa til manneldisvinnslu utan Íslands eða taka til manneldisvinnslu um borð í færeyskum vinnsluskipum meira en sem nemur 2/ 3 hlutum af kvóta færeyskra skipa, sbr. 1. mgr. Eftir 15. febrúar skal eigi meira en 1/ 3 hluti af kvóta færeyskra skipa fara til manneldisvinnslu utan Íslands.
Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2011/2012 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan efnahagslögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.
Virðingarfyllst,
Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra
b. Svarbréf utanríkisráðherra Færeyja.
Harra Össur Skarphéðinsson, uttanríkisráðharri
Utanríkisráðuneytið
Rauðarárstíg 25
105 Reykjavík
Ísland
Harra uttanríkisráðharri,
Eg loyvi mær at vátta bræv tygara, dagsett hin 18. februar 2011, sum ljóðar soleiðis:
„Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum føroyska og íslendska fiskimálaráðharrarnar um fiskiveiði í føroyskum og íslendskum sjógvi í 2011.
Eg havi skilt, at semja er um fylgjandi:
„Semja
millum Ísland og Føroyar
um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2011.
1. gr.
Loyvt er føroyskum skipum at landa veiðina til framleiðslu í Íslandi. Verður heildarlodnukvotan minni enn 500 túsund tons, er loyvt at landa til matna uttan fyri Ísland ella at virka til matna um borð á føroyskum verksmiðjuskipum nøgd sum svarar til 3/ 4 av kvotuni hjá føroyskum skipum, sbr. 1. grein. Verður heildarkvotan har aftur ímóti størri enn 500 túsund tons, er ikki loyvt at landa til matna uttan fyri Ísland ella at virka til matna um borð á føroyskum skipum meira enn 2/ 3 av føroysku kvotuni, sbr. 1. grein. Eftir 15. februar skal ikki meira enn 1/ 3 av føroysku kvotuni fara til matna uttan fyri Ísland.
Føroyskum skipum er í lodnuvertíðini 2011/2012 loyvt at veiða upp til 10.000 tons av lodnu í hvørji vertíð í íslendskum búskaparøki við veiðiheimildum, sum eru fíngnar við samráðingum millum Føroyar og Grønland.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
Um tygum staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er i samsvar við fatan tygara, loyvi eg mær at skjóta upp, at henda avtala fær gildi fyribils, tá svarbræv tygara hesum viðvíkjandi er dagsett og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.“
Ég loyvi mær at staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er i samsvar við fatan Føroya landsstýris, og semjan fær gildi fyribils í dag og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.
Við hávirðing,
Jacob Vestergaard
uttanríkisráðharri