Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 750. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1300  —  750. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um endurútreikning gengistryggðra lána.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Er ráðherra sáttur við framkvæmd fjármálafyrirtækja á endurútreikningi gengistryggðra lána?
     2.      Af hverju hefur ekki verið kveðið nánar á um framsetningu útreiknings á uppgjöri vegna ólögmætra vaxta og/eða verðtryggingar í reglugerð eins og heimilt er samkvæmt lögum nr. 151/2010?
     3.      Mun ráðherra aðhafast eitthvað frekar í þessum málum?