Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 837. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 1505  —  837. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um krabbamein.

Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.



     1.      Hversu margir karlar greindust með krabbamein hér á landi árin 2009 og 2010? Hversu mörg tilfelli greindust af hverri tegund krabbameins?
     2.      Hversu margar konur greindust með krabbamein hér á landi árin 2009 og 2010? Hversu mörg tilfelli greindust af hverri tegund krabbameins?
     3.      Hversu margir karlar létust af völdum krabbameins árlega á árabilinu 1991–2011, greint eftir tegundum krabbameins?
     4.      Hversu margar konur létust af völdum krabbameins árlega á árabilinu 1991–2011, greint eftir tegundum krabbameins?


Skriflegt svar óskast.