139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1515 — 533. mál.
Frumvarp til laga
um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.
(Eftir 2. umr., 20. maí.)
1. gr.
Þjóðtunga – opinbert mál.
2. gr.
Íslenskt mál.
Allir sem eru búsettir hér á landi skulu eiga þess kost að læra og nota íslensku til almennrar þátttöku í íslensku þjóðlífi svo sem nánar er mælt fyrir um í sérlögum.
3. gr.
Íslenskt táknmál.
Hver sem hefur þörf fyrir táknmál skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt táknmál, jafnskjótt sem máltaka hefst eða frá þeim tíma sem heyrnarleysi, heyrnarskerðing eða daufblinda hefur greinst. Sama rétt eiga nánustu aðstandendur.
4. gr.
Íslenskt punktaletur.
Íslenskt punktaletur er fyrsta ritmál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Hver sem hefur þörf fyrir blindralestur vegna skerðingar á sjón skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt punktaletur um leið og hann hefur getu til.
5. gr.
Málstefna.
Íslenska ríkið og sveitarfélög stuðla að þróun, rannsóknum, kennslu og útbreiðslu íslensks táknmáls og styðja að öðru leyti við menningu, menntun og fræðslu fyrir heyrnarlausa, heyrnarskerta og daufblinda. Um málstefnu og stöðu íslensks táknmáls skal leitað samvinnu við málnefnd um íslenskt táknmál, sbr. 7. gr.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið fylgist með því hvernig lögum þessum er framfylgt og getur krafið einstakar stjórnsýslustofnanir um skýrslur þar að lútandi.
6. gr.
Íslensk málnefnd.
Hlutverk Íslenskrar málnefndar er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um málefni íslenskrar tungu á fræðilegum grundvelli og gera tillögur til ráðherra um málstefnu, auk þess að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu. Málnefndin getur átt frumkvæði að ábendingum um það sem vel er gert og það sem betur má fara við meðferð íslenskrar tungu á opinberum vettvangi. Íslensk málnefnd semur íslenskar ritreglur sem gilda m.a. um stafsetningarkennslu í skólum og ráðherra gefur út. Grundvallarbreytingar á ritreglum eru háðar samþykki ráðherra.
Skrifstofa Íslenskrar málnefndar er í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Ráðherra setur reglugerð um nánari starfsemi Íslenskrar málnefndar.
7. gr.
Málnefnd um íslenskt táknmál.
Hlutverk málnefndar um íslenskt táknmál er að vera stjórnvöldum til ráðuneytis um hvað eina er varðar íslenskt táknmál og stuðla að eflingu íslensks táknmáls og notkun þess í íslensku þjóðlífi.
Skrifstofa málnefndar um íslenskt táknmál er í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Ráðherra setur reglugerð um nánari starfsemi málnefndar um íslenskt táknmál.
8. gr.
Opinbert mál stjórnvalda.
9. gr.
Túlkun og táknmálstúlkun hjá stjórnvöldum.
Stjórnvöld skulu leitast við að tryggja að sá sem skilur ekki íslensku geti fengið úrlausn erinda sinna og tileinkað sér efni skjala og skilríkja sem skipta hann máli.
10. gr.
Málfarsstefna ríkis og sveitarfélaga.
11. gr.
Íslenskur fræðiorðaforði.
12. gr.
Opinbert mál á alþjóðavettvangi.
13. gr.
Skyldur ríkis og sveitarfélaga og staða íslensks táknmáls.
Íslenskt táknmál er jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform í samskiptum manna í milli og er óheimilt að mismuna mönnum eftir því hvort málið þeir nota.
14. gr.
Gildistaka, brottfellt lagaákvæði.