Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 846. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1521  —  846. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um vegrið á milli akbrauta á Reykjanesbraut.

Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.



     1.      Hafa viðeigandi aðilar kannað þörfina fyrir uppsetningu vegriðs á milli akbrauta á Reykjanesbraut (Keflavíkurvegi)?
     2.      Hefur þörfin fyrir vegrið á milli akbrauta á Reykjanesbraut (Keflavíkurvegi) verið metin með tilliti til umferðarslysa á Hafnarfjarðarvegi þar sem vegrið hefur verið sett upp á milli akbrauta?


Skriflegt svar óskast.