Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 855. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1563  —  855. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um fangelsi á Hólmsheiði.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hver útbjó útboðsgögn fyrir byggingu fangelsis á Hólmsheiði?
     2.      Hvað er hlutur íslenskra arkitekta stór í þeirri vinnu sem er lokið?
     3.      Hver er staðan á málinu og hvenær er gert ráð fyrir að fangelsið verði tekið í notkun?