Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 876. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1659  —  876. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um stöðu lífsskoðunarfélaga.

Frá Baldri Þórhallssyni.



     1.      Hefur ráðherra í hyggju að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga, hvort sem um er að ræða veraldleg eða trúarleg félög, með sérstakri lagasetningu?
     2.      Hvað hefur verið gert í ráðuneytinu til þess að undirbúa slíka lagasetningu?


Skriflegt svar óskast.