Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1862, 139. löggjafarþing 719. mál: leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis (olíuleitarleyfi).
Lög nr. 105 7. september 2011.
Rekstraraðili.
Við veitingu rannsóknar- og vinnsluleyfis skal Orkustofnun ákveða rekstraraðila fyrir hvert einstakt leyfi.
Óheimilt er að skipta um rekstraraðila nema með sérstöku leyfi Orkustofnunar. Í sérstökum tilvikum getur Orkustofnun skipt út rekstraraðila að eigin frumkvæði.
Í þeim tilvikum þar sem Orkustofnun hefur ákveðið rekstraraðila, sem er ekki leyfishafi rannsóknar- og vinnsluleyfis, þá skulu skyldur og aðrar skuldbindingar laga þessara gagnvart leyfishöfum eiga við um þann rekstraraðila nema annað sé sérstaklega tekið fram. Nánar skal kveðið á um skyldur rekstraraðila í rannsóknar- og vinnsluleyfi.
Þingskjal 1862, 139. löggjafarþing 719. mál: leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis (olíuleitarleyfi).
Lög nr. 105 7. september 2011.
Lög um breytingu á lögum nr. 13/2001, um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Orðin „leitar“ og „III. og“ í 6. mgr. falla brott.
- Við 6. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Íslenskt útibú eða umboðsskrifstofa félags sem skráð er í aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum telst skráður aðili.
- Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Rekstraraðili merkir í lögum þessum sá aðili sem sér um daglega stjórn kolvetnisstarfseminnar fyrir hönd leyfishafa.
Leitarleyfishafi merkir í lögum þessum aðili sem fengið hefur leyfi til leitar að kolvetni skv. III. kafla.
2. gr.
Í stað orðsins „leyfishafa“ í 1. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: leitarleyfishafa.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Við 3. málsl. 1. mgr. bætist: og skulu sömu skilyrði eiga við um ákvörðun Orkustofnunar um rekstraraðila, sbr. 1. mgr. 10. gr. a.
- Á eftir 3. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Gera má ríkari kröfur til rekstraraðila í því sambandi.
- 3. mgr. orðast svo:
- Við 7. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Rekstraraðili er ábyrgur fyrir útreikningi og greiðslu gjaldsins fyrir hönd leyfishafa.
4. gr.
Við 1. mgr. 9. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í umsókn skal umsækjandi tilnefna rekstraraðila.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. 6. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Íslenskt útibú eða umboðsskrifstofa félags sem skráð er í aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum telst sérstakt félag.
- Orðin „frá Íslandi“ í 2. málsl. 6. mgr. falla brott.
- 7. mgr. orðast svo:
6. gr.
Á eftir 10. gr. laganna kemur ný grein, 10. gr. a, er orðast svo ásamt fyrirsögn:Óheimilt er að skipta um rekstraraðila nema með sérstöku leyfi Orkustofnunar. Í sérstökum tilvikum getur Orkustofnun skipt út rekstraraðila að eigin frumkvæði.
Í þeim tilvikum þar sem Orkustofnun hefur ákveðið rekstraraðila, sem er ekki leyfishafi rannsóknar- og vinnsluleyfis, þá skulu skyldur og aðrar skuldbindingar laga þessara gagnvart leyfishöfum eiga við um þann rekstraraðila nema annað sé sérstaklega tekið fram. Nánar skal kveðið á um skyldur rekstraraðila í rannsóknar- og vinnsluleyfi.
7. gr.
Við 1. mgr. 11. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Rekstraraðila leyfis.8. gr.
Orðin „III. og“ í 21. gr. laganna falla brott.9. gr.
Í stað orðanna „Leyfishafi skal“ í 3. mgr. 22. gr. laganna kemur: Leyfishafi og aðrir sem stunda kolvetnisstarfsemi skulu.10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 24. gr. laganna:- Í stað orðsins „leyfishafi“ kemur: handhafar leitar-, rannsóknar- og vinnsluleyfa.
- Orðin „til leitar, rannsókna og vinnslu“ falla brott.
11. gr.
Í stað orðsins „leyfishafa“ í 1. málsl. 1. mgr. 24. gr. a laganna kemur: handhafa leitar-, rannsóknar- og vinnsluleyfa.12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr. b laganna:- Í stað orðsins „leyfishafi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: handhafi leitarleyfis eða rannsóknar- og vinnsluleyfis.
- Á undan orðinu „leyfishafi“ í 2. og 3. málsl. 1. mgr. og 6. málsl. 2. mgr. kemur: leitarleyfis- eða.
13. gr.
Á undan orðunum „leyfishafi“ í 2. málsl. og „leyfishafa“ í fyrirsögn 26. gr. laganna kemur: leitarleyfis- og.14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. a laganna:- Í stað orðsins „rannsóknarleyfis“ í 1. mgr. kemur: leitarleyfis eða rannsóknar- og vinnsluleyfis.
- Í stað orðsins „leyfishafi“ í 3. mgr. kemur: handhafi leitarleyfis eða rannsóknar- og vinnsluleyfis.
15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr. laganna:- Í stað orðsins „Leyfishafar“ í 1. mgr. kemur: Handhafar leitarleyfa eða rannsóknar- og vinnsluleyfa.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Orkustofnun er heimilt, við ákvörðun um rekstraraðila, að kveða svo á um að skaðabótaskylda samkvæmt þessari málsgrein nái einnig til rekstraraðila sem ekki er leyfishafi.
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
16. gr.
Í stað orðsins „leyfi“ í 1. málsl. 1. mgr. 30. gr. laganna kemur: rannsóknar- og vinnsluleyfi.17. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 6. september 2011.