Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1987, 139. löggjafarþing 661. mál: orlof (orlof í kjölfar veikinda, EES-reglur).
Lög nr. 133 27. september 2011.
Þingskjal 1987, 139. löggjafarþing 661. mál: orlof (orlof í kjölfar veikinda, EES-reglur).
Lög nr. 133 27. september 2011.
Lög um breytingu á lögum nr. 30/1987, um orlof, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:- 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Getur starfsmaður þá krafist orlofs á öðrum tíma og skal orlofið ákveðið í samráði atvinnurekanda við starfsmanninn skv. 5. gr. en þó eins fljótt og unnt er eftir að veikindunum lýkur.
- 2. mgr. fellur brott.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. september 2011.