Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 18. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Prentað upp.

Þingskjal 18  —  18. mál.
Viðbót.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um uppgjör gengistryggðra lána fyrirtækja.



Frá Margréti Tryggvadóttur.



     1.      Um hversu háa fjárhæð hafa lán fyrirtækja verið færð niður í kjölfar dóma Hæstaréttar Íslands er varða lögmæti gengistryggðra lánasamninga, t.d. dóma frá 16. júní 2010 (Hrd. 153/2010) og 9. júní 2011 (Hrd. 155/2011)? Svar óskast sundurliðað eftir fjármálafyrirtækjum og tegund lána, þ.e.:
                  a.      fasteignakaupalánum,
                  b.      bílalánum,
                  c.      lánum vegna kaupa á eignarhlutum í fyrirtækjum,
                  d.      eigna- og kaupleigusamningum,
                  e.      öðrum lánum.
     2.      Hver er fjárhæð endurútreiknaðra vaxta fjármálafyrirtækja vegna þessara niðurfærslna, sundurliðað samkvæmt sömu forsendum?
     3.      Um hversu háa fjárhæð hafa lán fyrirtækja verið færð niður að teknu tilliti til fjárhæðar endurútreiknaðra vaxta, sundurliðað samkvæmt sömu forsendum?


Skriflegt svar óskast.