Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 172. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 176  —  172. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um fráveitumál sveitarfélaga.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.


     1.      Hver er staða fráveitumála hjá sveitarfélögum og hafa þau öll komið fráveitumálum sínum í ásættanlegt horf?
     2.      Hyggst ráðherra hafa frumkvæði að fjárstuðningi við sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda?