Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 186. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 190  —  186. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um útdeilingu fjárframlaga frá erlendum aðilum.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


    Hvernig er háttað útdeilingu 596 millj. kr. fjárframlaga frá erlendum aðilum, sbr. lið 17.2.1 í sundurliðun 1, Tekjur A-hluta, í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2012: Styrkir frá Evrópusambandinu vegna aðildarumsóknar Íslands? Svarið óskast sundurliðað eftir:
     a.      ráðuneytum,
     b.      undirstofnunum innan ráðuneyta,
     c.      ferðum ráðherra á fundi Evrópusambandsins,
     d.      ferðum ráðuneytis- og skrifstofustjóra á fundi Evrópusambandsins,
     e.      ferðum annarra embættismanna, sundurliðað eftir undirstofnunum, á fundi Evrópusambandsins.


Skriflegt svar óskast.