Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 244. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 253  —  244. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um íbúðir sem Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hversu margar íbúðir hefur Íbúðalánasjóður yfirtekið frá 2006 og hvernig skiptast þær eftir kjördæmum?
     2.      Hvert er áætlað verðmæti íbúðanna?
     3.      Hversu mörgum þessara íbúða hefur sjóðurinn komið í leigu?
     4.      Hversu margar þessara íbúða hafa verið seldar?


Skriflegt svar óskast.