Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 180. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 287  —  180. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar
um ráðningar starfsmanna.


     1.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og viðskiptaráðuneytinu þar á undan án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
    Sérfræðingur á skrifstofu fjármálamarkaðar: 1. janúar 2008 – 30. júní 2008.
    Upplýsingafulltrúi: 1. nóvember 2008 – 30. apríl 2009.

     2.      Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?
    Hvorugur er nú starfandi í ráðuneytinu.