Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 461. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 706  —  461. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um nefndir sem ríkisstjórnin hefur sett á stofn.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hvað hefur ríkisstjórnin sett á stofn margar nefndir frá alþingiskosningunum 2009, sundurliðað eftir ráðuneytum?
     2.      Hvaða nefndir eru þetta og hvað sitja margir í hverri nefnd?
     3.      Hver er launakostnaðurinn, sundurliðaður eftir nefndum?
     4.      Hvað hafa nefndirnar marga starfsmenn?


Skriflegt svar óskast.