Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 500. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 762  —  500. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um hlutfall skatta og gjalda til ríkissjóðs af
útsöluverði bensíns og dísilolíu.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hvenær hefur hlutfall skatta og gjalda til ríkissjóðs af útsöluverði bensíns og dísilolíu verið hæst á tímabilinu frá ársbyrjun 1995 til janúarloka 2012?
     2.      Hvernig hefur hlutfallið þróast hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum á sama tímabili?