Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 648. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1226  —  648. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar um áhrif ESB
á umræður um ESB-aðild.


     1.      Hver er skoðun ráðherra á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
    Velferðarráðuneytið tekur virkan þátt í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, meðal annars með aðkomu fulltrúa ráðuneytisins í fjórum samningahópum. Ráðuneytið á samráð við fulltrúa allra erlendra sendiráða hér á landi eftir því sem þurfa þykir og gildir það sama um sendinefnd Evrópusambandsins. Hvorki sendiherrann né sendinefndin hafa blandað sér með beinum eða óbeinum hætti í þau málefni sem undir velferðarráðuneytið heyra.

     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þáttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
    Hluti af því að efla umræðu og upplýsingamiðlun um Evrópusambandið meðan á aðildarferlinu stendur er að Alþingi hefur veitt fjármuni til þeirra hreyfinga og samtaka sem halda uppi mismunandi sjónarmiðum í umræðunni. Með því er leitast við að tryggja öfluga og upplýsta umræðu viðkomandi aðila og stuðla að því að endanleg niðurstaða um aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu verði byggð á upplýstri ákvörðun.
    Að öðru leyti er vísað til svars við fyrri lið fyrirspurnarinnar, enda liggur fyrir að Alþingi, sem ákvað að aðildarviðræður skyldu hafnar, hefur gert sitt til þess að tryggja að fjölbreytt sjónarmið og upplýsingar fái sess í umræðunni.