Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 647. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1230  —  647. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar
um áhrif ESB á umræður um ESB-aðild.


     1.      Hver er skoðun ráðherra á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
    Mennta- og menningarmálaráðuneytið tekur þátt í aðildarviðræðum við Evrópusambandið og á fulltrúa í nokkrum samningahópum. Ráðuneytið á samráð við fulltrúa erlendra sendiráða hér á landi eftir því sem þurfa þykir og gildir það sama um sendinefnd Evrópusambandsins. Hvorki sendiherrann né sendinefndin hafa blandað sér með beinum eða óbeinum hætti í þau málefni sem undir ráðuneytið heyra.
    Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur um árabil fyrir hönd Íslands verið þátttakandi í öllum helstu áætlunum Evrópusambandsins í þeim málaflokkum sem undir ráðuneytið heyra og því hafa aðildarviðræður nú haft hverfandi áhrif á umræðu um það.

     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
    Hluti af því að efla umræðu og upplýsingamiðlun um Evrópusambandið meðan á aðildarferlinu stendur er að fjármunum hefur verið veitt af Alþingi til þeirra hreyfinga og samtaka sem halda uppi mismunandi sjónarmiðum í umræðunni.
    Með öflugri og upplýstri umræðu, þar sem öllum er gefinn kostur á þátttöku, verður endanleg niðurstaða um aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu byggð á upplýstri ákvörðun.
    Að öðru leyti er vísað til svars við 1. tölul., enda liggur fyrir að Alþingi, sem ákvað að aðildarviðræður skyldu hafnar, hefur gert sitt til þess að tryggja að fjölbreytt sjónarmið og upplýsingar fái sess í umræðunni.