Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 864. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1650  —  864. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um leigumiðlun Íbúðalánasjóðs.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hvað eru margar eignir í eigu Íbúðalánasjóðs sem hægt væri að leigja út og hvað hafa þær verið lausar lengi?
     2.      Hvers vegna var viðræðum við félag leigumiðlara slitið?
     3.      Hverjir munu sinna störfum leigumiðlara í nýju leigufélagi Íbúðalánasjóðs?


Skriflegt svar óskast.