Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 113  —  113. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um gistináttagjald.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.


     1.      Hversu miklum tekjum hefur gistináttagjald sem sett var á árið 2011 skilað í ríkissjóð?
     2.      Hvernig er gjaldið innheimt?
     3.      Er lagður virðisaukaskattur á gjaldið?
     4.      Hvernig hefur gjaldinu verið varið?