Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 218. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 226  —  218. mál.




Fyrirspurn



til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um aflareglu.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.


     1.      Hvaða tillögur liggja nú fyrir um aflareglu við veiðar á ýsu, gullkarfa og ufsa?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til þessara tillagna?
     3.      Hver hefði orðið úthlutun aflamarks í þessum tegundum á yfirstandandi fiskveiðiári ef tillögum að aflareglu hefði verið fylgt?