Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 243. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 267  —  243. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um biðlista eftir hjúkrunarrýmum.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.

     1.      Hversu margir eru á biðlistum eftir hjúkrunarrýmum?
     2.      Á hvaða landsvæðum eru lengstu biðlistarnir?
     3.      Er unnið eftir áætlun um að stytta listana?
     4.      Hver er áætlaður kostnaður við að eyða listunum?
     5.      Hvað hafa mörg ný hjúkrunarrými verið tekin í notkun frá 2009 og hvaða áætlanir eru um frekari fjölgun?


Skriflegt svar óskast.