Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 254. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 281  —  254. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um þróun vaxtakostnaðar húsnæðislána.

Frá Lúðvík Geirssyni.


     1.      Hver er vaxtakostnaður íslenskra heimila af húsnæðislánum sl. 5 ár, sundurliðaður fyrir hvert ár á föstu verðlagi?
     2.      Hver er vaxtakostnaðurinn áætlaður árið 2012?
     3.      Hversu stór hluti vaxtakostnaðarins hefur verið endurgreiddur árlega sl. 5 ár? Fram komi í svarinu bæði heildarfjárhæð og hlutfall af heildarvaxtagjöldum húsnæðislána.


Skriflegt svar óskast.