Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 359, 141. löggjafarþing 248. mál: Stjórnarráð Íslands (skrifleg framlagning mála á ríkisstjórnarfundum).
Lög nr. 115 31. október 2012.
Öllum málum sem ráðherrar bera upp í ríkisstjórn skal fylgja sérstakt minnisblað ráðherra til ríkisstjórnar þar sem meginatriði máls eru rakin og helstu sjónarmið sem að baki liggja. Ef óskað er eftir samþykki ríkisstjórnar skal setja þar fram skýrt orðaða tillögu. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt með samþykki forsætisráðherra að víkja frá skyldu til að leggja mál fram skriflega.
Þingskjal 359, 141. löggjafarþing 248. mál: Stjórnarráð Íslands (skrifleg framlagning mála á ríkisstjórnarfundum).
Lög nr. 115 31. október 2012.
Lög um breytingu á lögum nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands (skrifleg framlagning mála á ríkisstjórnarfundum).
1. gr.
Á eftir 2. mgr. 6. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Öllum málum sem ráðherrar bera upp í ríkisstjórn skal fylgja sérstakt minnisblað ráðherra til ríkisstjórnar þar sem meginatriði máls eru rakin og helstu sjónarmið sem að baki liggja. Ef óskað er eftir samþykki ríkisstjórnar skal setja þar fram skýrt orðaða tillögu. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt með samþykki forsætisráðherra að víkja frá skyldu til að leggja mál fram skriflega.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Ef afgreiðsla máls byggist á öðrum sjónarmiðum en þeim sem lýst er í minnisblaði ráðherra, sbr. 3. mgr. 6. gr., eða í öðrum framlögðum gögnum skal gera grein fyrir þeim í fundargerð.
- 4. mgr. orðast svo:
3. gr.
2. mgr. 28. gr. laganna fellur brott.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.5. gr.
Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á upplýsingalögum, nr. 50/1996, með síðari breytingum: Við 3. mgr. 8. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal veita aðgang að gögnum skv. 1. tölul. 4. gr. þegar liðin eru átta ár frá því að gögnin urðu til að frátöldum upplýsingum sem falla undir 5. og 6. gr.Samþykkt á Alþingi 25. október 2012.