Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 360  —  316. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu (hámark vaxta).

Flm.: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Lilja Mósesdóttir,
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Þráinn Bertelsson, Þór Saari.


1. gr.


    Á eftir 14. gr. laganna kemur ný grein, svohljóðandi:
    Verðtryggt lánsfé skal ekki bera hærri almenna vexti en 2%.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var áður flutt á 140. löggjafarþingi og er nú endurflutt.
    Við útreikning vaxta af verðtryggðum lánum er skv. 4. gr. vaxtalaga miðað við að vextir skuli vera jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum hjá lánastofnunum, ef hundraðshluti þeirra eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki tiltekin. Með þessu frumvarpi er hins vegar lagt til að verðtryggð lán beri aldrei hærri vexti en nemur 2%.
    Afar brýnt er að lækka raunvexti fasteignalána sem eru hærri en gerist í nágrannalöndunum þar sem verðtrygging er ekki jafnútbreidd. Rök fyrir verðtryggingu hafa m.a. verið þau að með henni sé hægt að halda vöxtum lægri en ella vegna þess hve lítil áhætta lánveitandans er. Verðtrygging lána tryggir hagsmuni lánveitanda með þeim hætti að hann er varinn fyrir öllum sveiflum í verðlagi. Sá sem tekur verðtryggt lán er hins vegar með öllu óvarinn á tímum verðbólgu. Hækki verðlagið, hækka lánin. Á Íslandi hafa lánveitendur getað tryggt lánsfjármagnið með verðtryggingu og breytilegum vöxtum, stundum meira að segja hvoru tveggja í senn.
    Mikilvægt er að ná fram raunvaxtalækkun til að létta undir með skuldsettum heimilum. Enda þótt greiðslubyrði verðtryggðra lána sé lægri framan af lánstímanum þá er það vegna þess að verðtryggingin, sem er hluti af lánskostnaðinum, greiðist ekki þegar í stað heldur bætist ofan á höfuðstólinn. Þegar upp er staðið verður verðtryggt lán fyrir bragðið kostnaðarsamara en óverðtryggt lán.
    Í þágu heimilanna í landinu er brýnt að afnema vísitölubindingu lána eins fljótt og auðið er. Þar til það hefur verið gert er hér lagt til úrræði til varnar lántakendum þannig að auk verðtryggingar sem leggst ofan á höfuðstól lánanna sé lánveitanda ekki heimilt að leggja á vexti umfram tiltekið hámark, eða 2%.
     Mál þetta hefur verið lagt fram á fyrri þingum af Ögmundi Jónassyni en fékk illu heilli ekki afgreiðslu.