Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 370. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 428  —  370. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um innanlandsflug.

Frá Jóni Bjarnasyni.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem við blasir í innanlandsflugi ef flugfélagið Ernir hættir öllu áætlunarflugi til minni áfangastaða á landinu?
     2.      Hyggst ráðherra tryggja reglulegt áætlunarflug til umræddra áfangastaða?