Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 388. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 463  —  388. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um rannsókn á heilsu og líðan Íslendinga árið 2012.

Frá Jóni Bjarnasyni.


     1.      Hefur velferðarráðherra gefið leyfi sitt fyrir þeim spurningum sem settar eru fram í spurningalista Landlæknisembættisins Rannsókn á heilsu og líðan Íslendinga árið 2012?
     2.      Hefur Persónuvernd gefið leyfi sitt fyrir þeim spurningum sem þar eru settar fram?
     3.      Hefur Siðfræðiráð Læknafélags Íslands verið spurt álits á þeim spurningum sem þar eru settar fram?
     4.      Hefur Siðfræðistofnun Háskóla Íslands verið spurð um álit sitt á spurningum sem þar eru settar fram?