Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 590. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1004 — 590. mál.
1. Hverjar hafa frá setningu laga um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, verið árlegar greiðslur sóknargjalda og annarra gjalda til eftirtalinna:
a. safnaða þjóðkirkjunnar,
b. skráðra trúfélaga,
c. Háskóla Íslands,
d. jöfnunarsjóðs sókna?
2. Hvert hefur gjaldið verið fyrir hvern einstakling á sama tíma?
3. Hver var fjárhæð meðaltekjuskattsstofns einstaklinga á öllu landinu, sem vísað er til í 3. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga um sóknargjöld o.fl., sundurliðað á hvert ár frá setningu laganna?
4. Hver hefði mánaðarleg upphæð greiddra sóknargjalda verið á hvern einstakling árin 2002–2013 ef ákvæði til bráðabirgða I–V í lögum um sóknargjöld o.fl. hefðu ekki verið sett, sundurliðað á hvert almanaksár?
5. Hverjar hafa árlegar heildargreiðslur til þjóðkirkjunnar verið árin 2002–2013 og hvernig skiptast þær?
Skriflegt svar óskast.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1004 — 590. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um sóknargjöld.
Frá Birgittu Jónsdóttur.