Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 611. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1049  —  611. mál.




Fyrirspurn



til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Er upplýsingaöryggi í Fjármálaeftirlitinu á árinu 2013 með vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt ISO 27001 og hvenær fékkst sú vottun?
     2.      Ef slík vottun er ekki fyrir hendi, af hverju var fallið frá því að fá slíka vottun eins og stefnt var að á árinu 2009 í skýrslu um áætlaðan rekstrarkostnað Fjármálaeftirlitsins 2008?


Skriflegt svar óskast.