Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 644. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1143  —  644. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um tekjuskatt árin 2008–2012.

Frá Atla Gíslasyni.


     1.      Hverjar voru heildartekjur ríkissjóðs af tekjuskatti árin 2008–2012 á verðlagi hvers árs og færðar til verðlags 31. desember 2012?
     2.      Hver voru skattþrep til tekjuskatts í fjárhæðum talin árin 2008–2012 á verðlagi hvers árs og á verðlagi 31. desember 2012?
     3.      Hvernig skiptast heildartekjur ríkissjóðs af tekjuskatti í hvert skattþrep árin 2008–2012 á verðlagi hvers árs og færðar til verðlags 31. desember 2012?
    Svar við fyrirspurninni óskast sundurliðað eftir tekjuskatti á einstaklinga annars vegar og lögaðila hins vegar.


Skriflegt svar óskast.