Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 645. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1144  —  645. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um heildarskuldir þjóðarbúsins árin 2006–2012.

Frá Atla Gíslasyni.


     1.      Hverjar voru heildarskuldir þjóðarbúsins samtals 31. desember árin 2006–2012 á verðlagi hvers árs og færðar til verðlags 31. desember 2012?
     2.      Hvert var hlutfall innlendra heildarskulda og erlendra heildarskulda þjóðarbúsins ár hvert 31. desember árin 2006–2012?
     3.      Hvert var hlutfall heildarskulda þjóðarbúsins af vergri þjóðarframleiðslu ár hvert 31. desember árin 2006–2012?


Skriflegt svar óskast.