Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 582. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1232  —  582. mál.

Síðari umræða.


Breytingartillaga



við breytingartillögu á þingskjali 1185 [áætlun um alþjóðlega
þróunarsamvinnu Íslands 2013–2016].

Frá Ragnheiði E. Árnadóttur.


    Í stað ártalsins „2013“ í d-lið 1. tölul. komi: 2011.

Greinargerð.


Lagt er til að áfram verði, líkt og í gildandi áætlun, miðað við að framlög til þróunarsamvinnu verði ekki lægri að raungildi en árið 2011 í stað ársins 2013 eins og lagt er til í breytingartillögu nefndarinnar á þingskjali 1185 og gerir flutningsmaður fyrirvara við þetta atriði í tillögu nefndarinnar. Vísað er til almenns fyrirvara sem lýtur að getu ríkissjóðs til að standa við skuldbindingar sínar í þessum málaflokki á næstu árum, sérstaklega í ljósi annarra skuldbindinga sem um þessar mundir eru að koma í ljós og skýrast.