Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 686. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1262  —  686. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um að minnast með táknrænum hætti alþjóðlegs dags lýðræðis 15. september ár hvert.


Flm.: Þuríður Backman.


    Alþingi ályktar að verða við kalli allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007 um að minnast með táknrænum hætti alþjóðlega lýðræðisdagsins 15. september ár hvert.

Greinargerð.

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2007 að 15. september skyldi vera alþjóðlegur lýðræðisdagur til að minnast Lýðræðisyfirlýsingar Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) frá september 1997. Fyrsti alþjóðlegi lýðræðisdagurinn var haldinn hátíðlegur 15. september árið 2008.
    Alþjóðaþingmannasambandið gaf út yfirlýsingu um alþjóðlegan lýðræðisdag sem leiðsögn fyrir ríkisstjórnir og þing um allan heim til eflingar lýðræði. Lýðræðisyfirlýsingin hefur mikið gildi þegar fjallað er um grundvallarlögmál lýðræðisins, viðmið í starfi lýðræðislegra stjórna og alþjóðlega vídd lýðræðis. Þá er yfirlýsingin viðleitni til að byggja upp og efla lýðræðislega stjórnarhætti hvar sem því verður við komið.
    Alþjóðaþingmannasambandið hvetur þjóðþing heims til að halda daginn hátíðlegan. Lagðar eru til mismunandi leiðir til að halda upp á daginn með táknrænum hætti og hafa þjóðþing frjálsar hendur varðandi útfærslu hans. Hægt væri til dæmis að skipuleggja sérstaka umræðu í þinginu þar sem fulltrúum allra þingflokka væri boðið að taka þátt í umræðum um lýðræði og þróun þess eða að skipuleggja þverpólitíska vinnuhópa innan þingsins sem ályktar um efnið. Þá mætti nota daginn til að vekja athygli á starfi skólaþings Alþingis þar sem nemendur efstu bekkja grunnskóla taka þátt í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Þar eiga nemendur að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra, tjá eigin skoðun og taka afstöðu.
    Nú á 191 ríki aðild að Sameinuðu þjóðunum en Ísland varð aðildarríki árið 1946. Lýðræði er einn af hornsteinum Sameinuðu þjóðanna.