2. FUNDUR
mánudaginn 10. júní,
kl. 7.30 síðdegis.
Undirritun drengskaparheits.
Óttarr Proppé, 11. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.
[Fundarhlé. --- 19:32]
[19:31]
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 10. júní, kl. 19.40. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu tólf mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Píratar.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Bjarkey Gunnarsdóttir, 9. þingmaður Norðausturkjördæmis.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voruBjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Valgerður Gunnarsdóttir, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.
Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.
Fyrir Pírata töluðu Jón Þór Ólafsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.
Þingmálaskrá:Fundi slitið kl. 22:12.
---------------