Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 13. máls.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 13  —  13. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um verðtryggð námslán.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


    Hyggst ráðherra á haustþingi leggja fram
     a.      frumvarp um leiðréttingu höfuðstóls verðtryggðra námslána vegna forsendubrests, t.d. um 20%,
     b.      frumvarp um að ný námslán verði ekki verðtryggð,
     c.      frumvarp um að námslánum sem nú eru verðtryggð verði breytt í óverðtryggð lán?