Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 42, 142. löggjafarþing 3. mál: stjórn fiskveiða (framlenging bráðabirgðaákvæða).
Lög nr. 81 2. júlí 2013.
Þingskjal 42, 142. löggjafarþing 3. mál: stjórn fiskveiða (framlenging bráðabirgðaákvæða).
Lög nr. 81 2. júlí 2013.
Lög um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum (framlenging bráðabirgðaákvæða).
1. gr.
Í stað orðanna „1. september 2013“ í 2. málsl. ákvæðis til bráðabirgða V í lögunum kemur: 1. september 2014.2. gr.
Í stað orðanna „2010/2011, 2011/2012 og 2012/2013“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða VII í lögunum kemur: til 2013/2014.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða VIII í lögunum:- Í stað orðanna „2011/2012 og 2012/2013“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: til 2013/2014.
- Í stað orðanna „og 2012/2013“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: til 2013/2014.
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður sem verður 3. málsl. og orðast svo: Aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt þessu ákvæði er óheimilt að framselja.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða IX í lögunum:- Í stað orðanna „og 2012/2013“ í 2. og 3. mgr. kemur: til 2013/2014.
- Í stað orðanna „allt að 2.000 lestum af óslægðum þorski og 600 lestum af óslægðum ufsa“ í 2. mgr. kemur: allt að 2.600 lestum af óslægðum botnfiski.
- Í stað orðanna „allt að 2.500 lestum af þorski og 500 lestum af ufsa“ í 3. mgr. kemur: allt að 3.000 lestum af óslægðum botnfiski.
- Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum:- Í stað orðanna „á árunum 2012 og 2013“ í 1. málsl. kemur: á árunum 2012, 2013 og 2014.
- Í stað orðanna „á árinu 2012 og 2013“ í 2. málsl. kemur: á árunum 2012, 2013 og 2014.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 25. júní 2013.