Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 439, 143. löggjafarþing 186. mál: barnaverndarlög (rekstur heimila fyrir börn).
Lög nr. 134 23. desember 2013.
Um skiptingu kostnaðar vegna fósturs á grundvelli 4. mgr. 65. gr. fer samkvæmt reglugerð er ráðherra setur.
Ríkið greiðir hluta kostnaðar vegna fósturs á grundvelli 4. mgr. 65. gr. samkvæmt ákvörðun Barnaverndarstofu. Við ákvörðun á hlutdeild ríkisins skal Barnaverndarstofa taka mið af kostnaði við að mæta sérþörfum þess barns sem ráðstafað er í fóstur á grundvelli ákvæðisins og kostnaði við þá sérstöku þjónustu, umönnun og þjálfun sem fósturforeldrum er ætlað að veita.
Þingskjal 439, 143. löggjafarþing 186. mál: barnaverndarlög (rekstur heimila fyrir börn).
Lög nr. 134 23. desember 2013.
Lög um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, og lögum nr. 80/2011, um breytingu á þeim lögum (rekstur heimila fyrir börn).
1. gr.
2. mgr. 75. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, orðast svo:Um skiptingu kostnaðar vegna fósturs á grundvelli 4. mgr. 65. gr. fer samkvæmt reglugerð er ráðherra setur.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 84. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002:- 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Barnaverndarstofa veitir barnaverndarnefndum leyfi til að reka heimili og önnur úrræði skv. 1. mgr.
- 5. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
3. gr.
2. mgr. 88. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, orðast svo:Ríkið greiðir hluta kostnaðar vegna fósturs á grundvelli 4. mgr. 65. gr. samkvæmt ákvörðun Barnaverndarstofu. Við ákvörðun á hlutdeild ríkisins skal Barnaverndarstofa taka mið af kostnaði við að mæta sérþörfum þess barns sem ráðstafað er í fóstur á grundvelli ákvæðisins og kostnaði við þá sérstöku þjónustu, umönnun og þjálfun sem fósturforeldrum er ætlað að veita.
4. gr.
A-liður 45. gr., 50.–52. gr., a-liður 53. gr., 1., 3. og 4. málsl. b-liðar 53. gr. og 9. mgr. 57. gr. laga nr. 80/2011 falla brott.5. gr.
Lög nr. 113/2012 falla úr gildi.6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2014.Samþykkt á Alþingi 19. desember 2013.