Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 257. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 479  —  257. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um rannsókn á tengslum rússneskra aðila við íslenska banka.


Frá Birgittu Jónsdóttur.



    Telur ráðherra ástæðu til að rannsakað verði hvort orðrómur um tengsl rússneskra aðila við íslensku bankana fyrir hrun eigi við rök að styðjast, t.d. á þann hátt að Alþingi skipaði rannsóknarnefnd samkvæmt lögum nr. 68/2011?


Skriflegt svar óskast.