Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 264. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 487  —  264. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um vernd afhjúpenda.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


    Verður lagt fram frumvarp á yfirstandandi þingi um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, sem miðar að því að tryggja vernd afhjúpenda í samræmi við ábendingar frá stýrihópi um framkvæmd þingsályktunartillögu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis sem samþykkt var á Alþingi 2010 og tilkynnt hafði verið að unnið væri að í forsætisráðuneytinu?