Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 43. máls.
Þingskjal 513 — 43. mál.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að koma á samstarfi við stjórnvöld í Færeyjum og á Grænlandi um skipulagningu námskeiða fyrir starfandi og upprennandi rithöfunda í samvinnu við rithöfundasambönd landanna með það að markmiði að styrkja ritlist og sagnahefð í löndunum.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Nr. 13/143.
Þingskjal 513 — 43. mál.
Þingsályktun
um samstarf við Færeyjar og Grænland um námskeið fyrir starfandi og upprennandi rithöfunda í löndunum þremur.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að koma á samstarfi við stjórnvöld í Færeyjum og á Grænlandi um skipulagningu námskeiða fyrir starfandi og upprennandi rithöfunda í samvinnu við rithöfundasambönd landanna með það að markmiði að styrkja ritlist og sagnahefð í löndunum.
Samþykkt á Alþingi 15. janúar 2014.