Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum (leiðbeiningar- og upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir).
(Eftir 2. umræðu, 16. janúar.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum.
1. gr.
a. Í stað „52. gr.“ í 3. og 4. málsl. 5. mgr. kemur: 39. og 40. gr.
b. Í stað „52. gr.“ í 6. mgr. kemur: 40. gr.
c. Í stað „52. gr.“ í 9. mgr. kemur: 39., 40. og 46. gr.
2. gr.
a. (37. gr.)
A. Leiðbeiningar- og rannsóknarskylda.
Leiðbeiningarskylda.
Tryggingastofnun skal upplýsa umsækjendur og greiðsluþega um heimildir stofnunarinnar til vinnslu persónuupplýsinga. Skal þar koma fram frá hverjum stofnuninni er heimilt að afla upplýsinga, um hvaða upplýsingar er að ræða og í hvaða tilgangi unnið er með þær.
Nú varðar erindi ekki starfssvið stofnunarinnar og skal það þá framsent á réttan stað svo fljótt sem auðið er og viðkomandi leiðbeint eftir því sem unnt er.
b. (38. gr.)
Rannsóknarskylda.
c. (39. gr.)
B. Upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir.
Upplýsingaskylda umsækjenda og greiðsluþega.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um maka umsækjanda eða greiðsluþega eftir því sem við getur átt.
d. (40. gr.)
Upplýsingar um tekjur.
Þegar um hjón er að ræða er Tryggingastofnun heimilt, að fengnu skriflegu samþykki beggja, að afla upplýsinga um tekjur maka og greiðslur til hans hjá framangreindum aðilum ef þær gætu haft áhrif á fjárhæð bóta. Sama gildir um tekjur sambúðarfólks sem uppfyllir skilyrði fyrir samsköttun skv. 3. mgr. 62. gr. laga um tekjuskatt.
Telji umsækjandi, greiðsluþegi eða maki upplýsingar frá þessum aðilum ekki réttar skal hann leggja fram gögn því til staðfestingar.
e. (41. gr.)
Skortur á upplýsingum.
f. (42. gr.)
Upplýsingaskylda heilbrigðisstarfsmanna.
g. (43. gr.)
Upplýsingaskylda annarra aðila.
Þá skulu Tryggingastofnun og sjúkratryggingastofnunin á sama hátt skiptast á upplýsingum um mat á örorku og öðrum upplýsingum að því marki sem þær eru nauðsynlegar við framkvæmd laganna.
h. (44. gr.)
Upplýsingaskylda án endurgjalds.
i. (45. gr.)
Eftirlit og viðurlög.
Grundvöll bótaréttar má endurskoða hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum sem orðið hafa á aðstæðum greiðsluþega.
Leiki rökstuddur grunur á að bótaréttur sé ekki fyrir hendi er heimilt að fresta greiðslum tímabundið meðan mál er rannsakað frekar og stöðva greiðslur komi í ljós að bótaréttur sé ekki fyrir hendi. Um ofgreiðslur og vangreiðslur fer skv. 55. gr.
Leiki rökstuddur grunur á að bætur séu greiddar á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga frá greiðsluþega er heimilt að afla upplýsinga frá þriðja aðila sem ætla má að geti veitt upplýsingar er máli skipta í því skyni að leiðrétta bótagreiðslur.
Komi í ljós að rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar hafi vísvitandi verið veittar eða einstaklingur hafi látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar í því skyni að njóta tryggingar eða fá óréttmætar greiðslur skal greiðsluþegi endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi.
j. (46. gr.)
C. Vernd persónuupplýsinga.
Þagnarskylda og meðferð persónuupplýsinga.
Þagnarskyldan gildir einnig um stjórn Tryggingastofnunar og þá sem sinna verkefnum fyrir stofnunina en eru ekki starfsmenn hennar.
Við meðferð persónuupplýsinga sem aflað er skal Tryggingastofnun gæta þess að uppfyllt séu skilyrði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Stofnunin skal tryggja að fyllsta öryggis sé gætt við sendingu og meðferð upplýsinga og setja skal öryggisstefnu, framkvæma áhættumat og gera aðrar öryggisráðstafanir til samræmis við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglur sem settar hafa verið á grundvelli þeirra. Þá skal stofnunin jafnframt gæta ákvæða laga um sjúkraskrár eftir því sem við á.
Upplýsingar sem aflað er vegna eftirlits á grundvelli ákvæða þessa kafla skal ekki varðveita lengur en nauðsynlegt er og skal þeim eytt að lokinni tímabundinni vinnslu í þágu eftirlits.
k. (47. gr.)
Ákvæði þessa kafla eiga við um sjúkratryggingastofnunina vegna framkvæmdar á IV. kafla laga þessara, eftir því sem við á.
3. gr.
Sækja skal um allar bætur og greiðslur samkvæmt lögum þessum. Þó þurfa þeir sem fá greiddan örorkulífeyri ekki að sækja sérstaklega um ellilífeyri skv. 17. gr. þegar þeir ná 67 ára aldri.
Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Tryggingastofnunar eða sendar með rafrænum hætti sem stofnunin telur fullnægjandi. Við afgreiðslu umsóknar skal þess gætt að öll nauðsynleg gögn og upplýsingar liggi fyrir, sbr. 38. gr., svo unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum. Sérstaklega skal þess gætt að umsækjandi, sem áunnið hefur sér rétt hjá skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum, hafi lagt fram umsókn um áunnin réttindi hjá viðkomandi lífeyrissjóðum og er Tryggingastofnun heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu bóta þar til upplýsingar um það liggja fyrir, sbr. 41. gr.
Við meðferð máls og afgreiðslu umsóknar er Tryggingastofnun heimilt að afla upplýsinga frá þeim aðilum sem tilgreindir eru í 43. gr. sem og skv. 4. mgr. 45. gr. sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum. Sama á við um nauðsynlegar upplýsingar hjá stofnunum erlendis þegar það á við.
Tryggingastofnun getur aflað upplýsinga skv. 3. mgr. með rafrænum hætti eða á annan hátt. Tryggja skal að upplýsingaöflun og úrvinnsla gangi ekki lengra en þörf krefur til að unnt sé að framkvæma lögin.
Ákvæði þessarar greinar eiga við um sjúkratryggingastofnunina eftir því sem við á.
4. gr.
5. gr.
a. Í stað „52. gr.“ í 2. mgr. kemur: 39. gr.
b. Í stað „3. mgr. 52. gr.“ í 4. mgr. kemur: 41. gr.
c. 5. mgr. fellur brott.
II. KAFLI
6. gr.
Breyting á lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
7. gr.
a. Í stað „52. gr.“ í 5. mgr. kemur: 39. og 40. gr.
b. Í stað „52. gr.“ í 6. mgr. kemur: 40. gr.
c. Í stað „52. gr.“ í 9. mgr. kemur: 39. og 40. gr.
8. gr.