Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 301. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 583  —  301. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um uppsagnir starfsmanna
Stjórnarráðs Íslands og starfslið ráðherra.


Frá Steingrími J. Sigfússyni.


     1.      Hve mörgum starfsmönnum ráðuneyta hefur verið eða verður sagt upp störfum vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu sem lögð var á aðalskrifstofur ráðuneyta í fjárlögum? Svarið óskast sundurliðað eftir ráðuneytum og í hve miklum mæli er um að ræða uppsagnir eða lækkun starfshlutfalls.
     2.      Hve marga aðstoðarmenn, ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni í fullu starfi eða hlutastarfi eða sem verktaka hefur hver ráðherra ríkisstjórnarinnar um sig ráðið frá stjórnarskiptum?


Skriflegt svar óskast.